09.02.2009

Er trúfrelsi málið?

Er rétt að líta á trúfrelsi sem sérstaka undirgrein mannréttinda eða eigum við að endurskoða þessar hugmyndir? Bloggarinn Hnakkus veltir upp mörgum áhugaverðum spurningum um hugmyndir sem við tökum flest sem gefnum.

Ritstjórn
Flokkað undir: ( Vísun )

Viðbrögð      Facebook icon


Ken - 09/02/09 16:36 #

Finnst þetta blogg vera frekar ruglað. Hvernig koma þessar 5 milljarðir þjóðkirkjunnar trúfrelsi við? Þetta er bara úrelt kerfi sem það þarf að taka í gegn. Það er einhvernveginn búið að spilla þessu hugtaki 'trúfrelsi' í þessu bloggi.


Hnakkus - 09/02/09 18:11 #

Hefurðu lesið trúfrelsiskafla stjórnarskrárinnar?

Hann byrjar á því að tiltaka að Lútersk-evangelísk kirkja sé þjóðkirkja Íslendinga og að ríkið (les: ég og þú) skuli styðja hana og vernda. Einnig er tiltekið að prestar hennar fái greitt úr ríkissjóði og að allir sem ekki tilheyri trúfélagi borgi sömu upphæð til Háskólans og þeir myndu annars greiða til trúfélags.

Augljóslega er þessi fyrsti partur í hrópandi mótsögn við hið óþarfa hugtak "trúfrelsi" en jafnvel þó hans nyti ekki við væri trúfrelsi til vandræða.

Restin af trúfrelsisbálkinum fer í að tryggja mönnum frið frá ofsóknum vegna trúar sinnar. Sem er tvíverknaður því það væri ekkert leyfilegt að ofsækja fólk vegna skoðana sinna á gömlum ævintýrum jafnvel þó klausunnar nyti ekki við.

Sérhólf í stjórnarskrám fyrir ákveðnar tegundir skoðana, hafa ekkert gert nema tryggja í sessi þá sameiginlegu ranghugmynd trúaðra um að þeirra trú komi öðru fólki eitthvað við og að það eigi eitthvað inni hjá öllum öðrum fyrir að kjósa að lifa eftir einhverju tilteknu hugmyndakerfi.

Ég hélt reyndar að þetta væri temmilega augljóst þegar ég skrifaði þetta en vonandi skilst þetta betur núna.


Óli Gneisti (meðlimur í Vantrú) - 09/02/09 18:45 #

Ég bendi annars öðrum sem vilja rökræða um bloggfærsluna hans Hnakkusar að gera það hjá honum, það er bara almenn kurteisi í hans garð.


Ken - 10/02/09 03:36 #

Þá er greinilega ekki trúfrelsi í landinu. Afhverju ættum við þá að vera á móti trúfrelsi í stað þess að reyna auka trúfrelsið?


Sveinn - 10/02/09 09:31 #

Vá Ken, lestu bloggið hans Hnakkusar - hann útskýrir þetta vandlega!

Sýnið viðbrögð, en vinsamlegast sleppið öllum ærumeiðingum. Einnig krefjumst við þess að fólk noti gild tölvupóstföng, líka þegar notast er við dulnefni. Ef það sem þið ætlið að segja tengist ekki þessari grein beint þá bendum við á spjallborðið. Þeir sem ekki fylgja þessum reglum eiga á hættu að athugasemdir þeirra verði færðar á spjallborðið.

Hægt er að nota HTML kóða í ummælum. Tög sem virka eru: a href, b, i, u, br, p, strong, em, ul, li og blockquote. Einnig er hægt að notast við Markdown rithátt í athugasemdum. Notið skoða takkann til að fara yfir athugasemdina áður en þið sendið hana inn.










Muna þig?