Það hefur enginn skortur verið á hinum undarlegustu kraftaverkasögum undanafarin árþúsund. Ímynd guðs og heilagra manna og kvenna hafa birtst í ýmsustu myndum, s.s. Turin-klæðið með andlit sjálfs frelsarans, María mey á ristuðu brauði, augu guðs á viðarhurð, og ekki er annað að sjá en að svipur Sankti Tíbúlus hafi leynst í rjómafroðunni í bollanum af frappucinoinu sem ritstjóri þessa vefrits pantaði sér um daginn.
Núna fyrir stuttu gerðist enn eitt ótrúlega kraftaverkið er fjölskylda í Bandaríkjunum sáu sjálfan Jesú Krist í feldinum á kettlingi. Ótrúlegt! En eftirfarandi ljósmynd toppar allar þessar kraftaverkasögur af dularfullum drottinssvipum og andlitum sem birtast á hinum furðulegustu stöðum, þetta er svo ótrúlegt að það er varla hægt að útskýra þetta með eðlilegum hætti.
Að hugsa sér, Hann er allstaðar!
Jesús á eftir að taka sér bólfestu í Matthíasi og Hjalta Rúnari. Þeir tveir hætta í Vantrú og fara í Krossinn. Verða alvöru trúarkallar.
Er Jesús búinn að taka sér bólfestu í þessu hundrassgati?
"Sá sem er nálægt eldinum er nálægt mér" (Tómasarguðspjall)
Ég hef ekki komið hingað lengi, en sé að umræðurnar eru alltaf að verða æ hnitmiðraði og betri.
Ekki einasta verða umræðurnar hnitmiðaðri og betri, heldur eru þær líka endurunnar.
Nei, nú dámar mér. Ekki er nóg með það að andarnir sækja í gæludýr og morgunmat trúgjarna, þá eru fregnir um það að guðleysingi hafi séð upphaf og tildrög alheimsins á ristaða brauðinu sinu
Ótrúlegt!
Lokað hefur verið fyrir athugasemdir við þessa færslu. Við bendum á spjallið ef þið viljið halda umræðum áfram.
Kristján Hrannar Pálsson - 09/08/08 10:48 #
Jesús tapar þó klárlega samkeppninni við Flúgandi Spaghettískrímslið. Sjáið bara þetta!
http://www.ncbi.nlm.nih.gov/sites/entrez/
http://www.venganza.org/wp-content/uploads/2008/07/fireworks2.jpg
Hann rústar einnig ristaðbrauðssamkeppninni með því að birtast á lummu:
http://www.venganza.org/wp-content/uploads/2008/01/fsmpancakemarked.JPG
(Verst að ég kann ekki að gera alvöru hlekki, ef einhver gæti fiktað í þessu væri það velkomið)