Í dag birtist frétt á BBC þar sem fjallað er um það ábyrgðarleysi sem andstæðingar bólusetninga eru sekir um með því að fylla kollana á fólki með þeirri hugmynd að bólusetningar séu hættulegar. Með þessari herferð sinni gegn bólusetningum eru þeir loksins farnir að sjá árangur, fjöldi mislingatilfella árið 2007 fjölgaði um 30% frá árinu 2006 og fjölgunin er mest hjá flökku- og trúarhópum þar sem bólusetningar hafa aldrei verið færri. Líklega eru hamingjuóskir til þessara vitleysinga ekki viðeigandi í þessu tilfelli.
Svo má finna ágætis umfjallanir um bólusetningar og mislinga á doktor.is.
Sýnið viðbrögð, en vinsamlegast sleppið öllum ærumeiðingum. Einnig krefjumst við þess að fólk noti gild tölvupóstföng, líka þegar notast er við dulnefni. Ef það sem þið ætlið að segja tengist ekki þessari grein beint þá bendum við á spjallborðið. Þeir sem ekki fylgja þessum reglum eiga á hættu að athugasemdir þeirra verði færðar á spjallborðið.
Hægt er að nota HTML kóða í ummælum. Tög sem virka eru: a href, b, i, u, br, p, strong, em, ul, li og blockquote. Einnig er hægt að notast við Markdown rithátt í athugasemdum. Notið skoða takkann til að fara yfir athugasemdina áður en þið sendið hana inn.
Lárus Viðar (meðlimur í Vantrú) - 29/02/08 16:11 #
Þessi bölvuðu fífl. :(
Andstaða við bólusetningar er einhvers konar hugmyndafræðileg úrkynjun að mínu mati. Fólk sem hefur alist upp í heimi þar sem mörgum skaðlegum sjúkdómum hefur verið útrýmt með bólusetningum virðist hætt að skilja nauðsyn þeirra.