Allar færslur Allir flokkar Sos Um félagið Úrskráning Lógó Spjallid@Vantru Póstfang Vantru@Facebook Vantru@Youtube Vantru@Twitter

Þetta ætti að vera baráttumál okkar allra

Á vefnum First Freedom First má líta myndband þar sem Bandaríkjamenn úr öllum áttum færa augljós og einföld rök fyrir aðskilnaði ríkis og kirkju, að trúin sé einkamál manna og að aðkoma trúfélaga að stjórnmálum sé ekki það sem við þörfnumst, hvað þá að einum trúflokki sé hampað.

Hér er myndbandið:

Ritstjórn 29.12.2007
Flokkað undir: ( Vísun )

Viðbrögð


Anna Benkovic M. - 30/12/07 00:54 #

já, þetta er persónulegt, hvort maður trúi guði, allah eða miðlinum í næsta húsi. Óverjanlegt að skattgreiðendur borgi þetta apparat....ríkiskirkjuna, og út úr kú 2007!


Hjörtur Brynjarsson (meðlimur í Vantrú) - 30/12/07 16:45 #

Nú þarf bara að kasta út 62. greininni, 125. greininni í íslensku stjórnarskránni og bæta við grein eins og þeirri fyrstu í bandaríksku stjórnarskránni og þá kannski vonandi er hægt að gera svona myndband um hvernig þetta er á íslandi. Eins og fyrirsögnin segir; þetta ætti að vera baráttumál okkar allra!


Reynir (meðlimur í Vantrú) - 30/12/07 20:02 #

Skammast einhver sín fyrir þennan félagsskap?:

http://en.wikipedia.org/wiki/Image:State_Religions.png


Haukur Ísleifsson - 01/01/08 07:28 #

Hægt að nota þetta þegar fólk segir að ríkistrú sé ávísun á gott trúarlíf.

Lokað hefur verið fyrir athugasemdir við þessa færslu. Við bendum á spjallið ef þið viljið halda umræðum áfram.