25.12.2007
Jólakveðja í lengra lagi heitir ágætt greinarkorn eftir þjóðfræðinginn Eggert Sólberg Jónsson. Þar segir m.a:
Þó við kennum jólin í dag við fæðingu frelsarans eru jólin að öllum líkindum ekki kristin siður í upphafi. Í Biblíunni er ekki getið um fæðingardag Jesú og er það engin tilviljun. Í frumkristni var áherslan lögð á verk Jesú í lifanda lífi, dauðann á krossinum, upprisuna og himnaförina. Sjaldan hélt almenningur upp á fæðingardag sinn en öðru máli gegndi með konunga og höfðingja.
Sýnið viðbrögð, en vinsamlegast sleppið öllum ærumeiðingum. Einnig krefjumst við þess að fólk noti gild tölvupóstföng, líka þegar notast er við dulnefni. Ef það sem þið ætlið að segja tengist ekki þessari grein beint þá bendum við á spjallborðið. Þeir sem ekki fylgja þessum reglum eiga á hættu að athugasemdir þeirra verði færðar á spjallborðið.
Hægt er að nota HTML kóða í ummælum. Tög sem virka eru: a href, b, i, u, br, p, strong, em, ul, li og blockquote. Einnig er hægt að notast við Markdown rithátt í athugasemdum. Notið skoða takkann til að fara yfir athugasemdina áður en þið sendið hana inn.
Kristján Hrannar Pálsson - 25/12/07 15:40 #
Já það er alltaf jafn kostulegt þegar kristnir saka trúlausa (eða þá sem eru annarrar trúar) um að vera að stela jólunum frá sér, alls óafvitandi af því að það var í raun kirkjan sem stal þeim til að byrja með.