Allar færslur Allir flokkar Sos Um félagið Úrskráning Lógó Spjallid@Vantru Póstfang Vantru@Facebook Vantru@Youtube Vantru@Twitter

Hver var Jésús?

Þótt að við í Vantrú séum trúlaus með öllu erum við ekki laus við kímnigáfu. þessi brandari um lamb guðs er eiginlega of góður til að sleppa honum.

Hver var Jésús?

Sönnun þess að Jésús var Mexíkóbúi

  • Hann hét Jésús
  • Hann var tvítyngdur
  • Hann var ofsóttur af yfirvöldum

Sönnun þess að Jésús var Íri

  • Hann gifti sig aldrei
  • Hann var alltaf að segja sögur
  • Hann elskaði að vera út í náttúrunni

Sönnun þess að Jésús var svartur

  • Hann kallaði alla ”bræður”
  • Hann kann að meta gospeltónlist
  • Hann fékk ekki réttláta meðferð hjá yfirvöldum

Sönnun þess að Jésús var Ítali

  • Hann talaði mikið í boðhætti
  • Hann drakk vín með öllum máltíðum
  • Hann var viss um að móðir hans var jómfrú og hún var viss um að sonurinn væri guð

Sönnun þess að Jésús var frá Kaliforníu

  • Hann fór aldrei í klippingu
  • Hann gékk um berfættur
  • Hann stofnaði ný trúarbrögð

Sönnun þess að Jésús var kona

  • Hann þurfti að redda máltíð fyrir fullt af fólki þrátt fyrir að ekkert væri til
  • Hann reyndi að láta hlusta á sig en engin nennti að hlusta
  • Eftir að hann dó neyddist hann til að koma aftur því það voru svo mörg verkefni óunninn
Ritstjórn 12.12.2007
Flokkað undir: ( Grín )

Viðbrögð


Haukur Ísleifsson - 12/12/07 14:34 #

Góður.


Björn Ómarsson - 12/12/07 14:42 #

Góður.

Ég á í mestu erfilðeikum með að átta mig á því hver sönnun þess að Jesús væri Íslendingur gæti verið, Þannig að ég sting upp á leiknum:

Hvað sannar að Jesú hafi verið Íslendingur?

Svari nú hver sem getur :)


Flugnahöfðinginn (meðlimur í Vantrú) - 12/12/07 15:04 #

Hann breytti vatni í vín. Landabrugg var ekki óalgengt hér í gamladaga, þar var vatni breytt í vínnnn...óþvera. Því var Jesú Íslenskur bóndasonur. Verst að það voru engir hérna fyrir 2000 árum svo það gerir þessa röksemdarfæsrlu frekar veika. En hvað með það, það er allt í lagi þegar kemur að kristinni trú :)


Hlynur - 16/12/07 19:28 #

Ekki nóg með að það sé hægt að færa rök fyrir því að Jesú hafi verið Íslendingur heldur er hægt að segja með nokkurri vissu að Jesú hafi verið úr Breiðholtinu!

  1. Hann hafði lag á því að komast upp á kant við lögin.

  2. Hann bruggaði sitt eigið vín.

  3. Hann þekkti ekki alvöru pabba sinn.


viktor (meðlimur í Vantrú) - 18/12/07 17:38 #

góður hlynur ég hló

Lokað hefur verið fyrir athugasemdir við þessa færslu. Við bendum á spjallið ef þið viljið halda umræðum áfram.