Allar færslur Allir flokkar Sos Um félagið Úrskráning Lógó Spjallid@Vantru Póstfang Vantru@Facebook Vantru@Youtube Vantru@Twitter

Siðmennt svarar

Siðmennt hefur sent frá sér fréttatilkynningu þar sem það leiðréttir rangfærslur sem birst hafa í fjölmiðlum og útskýrir stefnu félagsins varðandi skólamál.

Ritstjórn 30.11.2007
Flokkað undir: ( Vísun )

Viðbrögð


Haukur Ísleifsson - 30/11/07 17:25 #

Go Siðmennt. Þó ég sjái ekki pointið með Litlu jólunum.


Bjarni - 30/11/07 23:56 #

Tengjast litlu jólin kristni eitthvað meira en jólin sjálf?


Haukur Ísleifsson - 01/12/07 00:13 #

Back in the day þegar ég var í grunskóla snerust Litlu jólin mikið um að lesa um Ésú og fæðingu hans.


Matti (meðlimur í Vantrú) - 01/12/07 00:17 #

Ég man nú bara eftir því að á litlu jólunum skiptust krakkar á pökkum.


Birgir Baldursson (meðlimur í Vantrú) - 01/12/07 00:21 #

Góð spurning. Litlu jólin eru eins og þau stóru sambland beggja siða. Það koma jólasveinar í heimsókn (alsendis ókristið fyrirbæri ættað úr þjóðtrú Íslendinga), reyndar í rauðum Coca Cola-búningi (tengist heilögum Nikulási). Söngvarnir sem sungnir eru kringum tréið (en það er algerlega ókristið fyrirbæri nema stjarnan á toppi þess) eru ýmist kristilegir eða ekki (Í Betlehem er barn oss fætt VS Jólasveinar einn og átta).

Á jólunum sjálfum er auðveldara að tengja framhjá hinu kristilega (Kristsmessulega) og njóta þess í stað matar, drykkjar, samveru, gjafa og ljósa. Reyndar held ég að margir trúleysingjar stilli inn á messuna í RÚV á aðfangadagskvöld, enda gefur orgelið og söngurinn stemmningu sem við höfum vanist frá því í frumbernsku. Og ef það eru einhverjir sem hlusta á ræðu prestsins þá eru það þeir trúleysingjar sem hafa lifandi áhuga á trúarlegri umræðu.

Mér finnst í lagi að litlu jólin séu sambland af kristnum söngvum og hundheiðnum. Þannig fá allir eitthvað við sitt hæfi, þótt ég efist reyndar stórlega um að börnin séu að gera sér einhverja rellu yfir innihaldi textanna. Það er stemningin sem skiptir máli fyrir þau, sparifötin, jólasveinarnir, samveran og eplin/nammið sem í boði er.


Kolla Kvaran - 01/12/07 01:06 #

Ég og flestir í minni fjölskyldu erum búddistar og höldum jólin hátíðleg vegna gamalla hefða og ekki kemur mér til hugar að særa þá sem ég elska.Og enginn er meira jólabarn en ég;p Jólin á Íslandi eru heldur ekki kristin ef við förum nánar út í það.Fyrir Kristniboðið voru Jólin haldin hátíðleg því þau voru ljósahátíð,sól fór að hækka á himni.Þetta kenni ég mínum börnum.Enda halda Vottarnir ekki jól vegna heiðninnar.


Haukur Ísleifsson - 01/12/07 15:06 #

Já já ætli þau megi ekki halda sér.


Matti (meðlimur í Vantrú) - 01/12/07 20:29 #

Athugasemd Kollu var stoppuð af spamvörn. Ég biðst velvirðingar á því að ég sá hana ekki fyrr en nú og setti á vefinn.

Lokað hefur verið fyrir athugasemdir við þessa færslu. Við bendum á spjallið ef þið viljið halda umræðum áfram.