18.10.2007
Skynsemin er höfuðandstæðingur trúarinnar. Hún kemur aldrei til hjálpar í andlegum efnum, berst oftar en ekki gegn hinu guðlega orði og fyrirlítur allt sem streymir frá guði.
Marteinn Lúther - Borðræður Lúthers CCCLIII
Oft ratast kjöftugum satt orð í munn. Á svo mörgum stöðum í Biblíunni er skynsemi manna, vit og lærdómur sagður fánýtur en einfeldni lofsungin. Þótt auðvelt sé að hæðast að þessu er ég þó einn af þeim sé ákveðinn sannleika í þeim boðskap. En ef hann er notaður til að réttlæta það sem gengur í berhögg við heilbrigða skynsemi er verið að misnota hann, að mínu viti. En svo eru menn ekki sammála um hvað er heilbrigð skynsemi.
Ætli Lútheri hafi þótt skynsamlegt að segja þetta? Og hvað segir það þá um Lúther eða þessi orð hans? (Æfingaverkefni í rökfræði 101)
Heilbrigd skynsemi er ju einmitt ekkert nidurneglt hugtak. Svo eg vitni nu i einn professorinn minn: ''common sense ain't so common anymore''.
Hvad Lutheri kallinum thotti svo skynsamlegt er eitthvad sem eg held ad erfitt se um ad daema. Faestum af samtimamonnum hans hefdu t.d. thott tad skynsamlegt ad negla 95 breytingartilogur a reglum, sidum og predikunum kirkjunar a adalhurd Schlosskirche i Wittenberg en hann gerdi tad nu samt.
Martin Luther smellhitti reyndar naglann tegar hann let tessi ord her ad ofan falla. Skynsemi og gudstru eru ekki fyrirbaeri sem haldast mikid i hendur.
Sýnið viðbrögð, en vinsamlegast sleppið öllum ærumeiðingum. Einnig krefjumst við þess að fólk noti gild tölvupóstföng, líka þegar notast er við dulnefni. Ef það sem þið ætlið að segja tengist ekki þessari grein beint þá bendum við á spjallborðið. Þeir sem ekki fylgja þessum reglum eiga á hættu að athugasemdir þeirra verði færðar á spjallborðið.
Hægt er að nota HTML kóða í ummælum. Tög sem virka eru: a href, b, i, u, br, p, strong, em, ul, li og blockquote. Einnig er hægt að notast við Markdown rithátt í athugasemdum. Notið skoða takkann til að fara yfir athugasemdina áður en þið sendið hana inn.
Sveinn - 18/10/07 10:16 #
Hárrétt trú byggir á ákvörðun án sannana en skynsemi krefst sannana.
Sveinn