Christopher Hitchens skefur ekki utan af því í þessari stuttu ræðu um trúarbrögðin og skaðsemina sem af þeim stafar. Allt hugsandi fólk ætti að velta alvarlega fyrir sér því sem hann segir þarna.
Stórgóðir vídjópistlar hjá þessum Pat Condell, horfði á alla syrpuna. Hann hittir ansi oft naglan á höfuðið og er auk þess mun fyndnari en Hitchens.
Christopher Hitchens, maðurinn sem kallaði Dixie Chicks "fucking fat slags" fyrir að vera á móti innrásinni í Írak, finnst mér ekki trúverðugur fulltrúi mannúðlegra húmanískra viðhorfa.
Lokað hefur verið fyrir athugasemdir við þessa færslu. Við bendum á spjallið ef þið viljið halda umræðum áfram.
Dvergurinn - 22/06/07 12:02 #
Mig langar að benda á annan mann sem hefur sterkar skoðanir á trúarbrögðum og virðist ekki sitja á þeim að ráði.
Hann heitir Pat Condell og er með reglulega pistla á Youtube.