15.03.2007

Já, hvers vegna?

Oft hlýtur presturinn að spyrja sig: "Til hvers? Hér er ég að semja prédikun, velja sálma, standa í ströngu að koma á messu, og svo mæta aðeins nokkrar manneskjur. Til hvers er ég að leggja þetta á mig? #

Karl biskup Sigurbjörnsson

Ritstjórn
Flokkað undir: ( Ófleyg orð )

Viðbrögð


Reynir (meðlimur í Vantrú) - 15/03/07 08:47 #

Möguleikar (merkið við eitt eða fleiri atriði):

a) Til að fá prik á himnum. b) Til að réttlæta feitan launaseðil frá ríkinu. c) Til að viðhalda þeirri hugmynd að prédikun hafi eitthvað gildi. d) Til að viðhalda hefðinni (vananum). e) Til að orgelleikari, kór og þessar fáu hræður geti fengið prik á himnum, réttlætt launaseðil, viðhaldið þeirri hugmynd að prédikun hafi eitthvað gildi, viðhaldið hefð (vana).


Birgir Baldursson (meðlimur í Vantrú) - 15/03/07 12:13 #

Kirkjan hefur brugðist við kirkjusóknarvandanum með margvíslegum hætti. Barnaguðþjónustur, börn fengin til að syngja kórsöng, skyldumæting fermingarbarna í nokkrar messur o.s.frv. Hverju barni fylgja svo einn til tveir fullorðnir og því góður slatti í kirkjunum marga sunnudaga.

Sýnið viðbrögð, en vinsamlegast sleppið öllum ærumeiðingum. Einnig krefjumst við þess að fólk noti gild tölvupóstföng, líka þegar notast er við dulnefni. Ef það sem þið ætlið að segja tengist ekki þessari grein beint þá bendum við á spjallborðið. Þeir sem ekki fylgja þessum reglum eiga á hættu að athugasemdir þeirra verði færðar á spjallborðið.

Hægt er að nota HTML kóða í ummælum. Tög sem virka eru: a href, b, i, u, br, p, strong, em, ul, li og blockquote. Einnig er hægt að notast við Markdown rithátt í athugasemdum. Notið skoða takkann til að fara yfir athugasemdina áður en þið sendið hana inn.










Muna þig?