10.11.2006

Viðtal við Reyni Harðarson

Við viljum benda fólki á þetta viðtal við Reyni Harðarson sem ungir sjálfstæðismenn í Garðabæ tóku. Stutt og góð umfjöllun um það hvers vegna hin svokallaða Vinaleið á ekki heima í opinberum skólum.

Ritstjórn
Flokkað undir: ( Vinaleið , Vísun )

Viðbrögð


Arnold Björnsson - 10/11/06 09:15 #

Ert þú trúaður? Nei. En ég er ekki að boða trúleysi, vil bara fá að hafa það í friði fyrir þjóðkirkjunni.

Frábær lokaorð á mjög upplýsandi viðtali fyrir þá sem ekki hafa kynnt sér Vinaleið þjóðkirkjunnar.


erlingur tryggvason - 10/11/06 14:31 #

í þessu blaði, sem hægt er að nálgast á www.haegri.is, er líka viðtal við frambjóðendur flokksins í komandi prófkjöri SV-kjördæmis, þar sem spurt er um aðskilnaði ríkis og kirkju og hvort trúfélög eigi að hafa aðgang að börnum í skólum.

Eitthvað sem ykkur ætti að þykja fræðandi.


Hjalti Rúnar Ómarsson (meðlimur í Vantrú) - 10/11/06 17:21 #

Kannski rétt að vísa beint á blaðið þar sem viðtölin eru: Hægri [1,9MB *.pdf]

Mér fannst mjög áhugavert að lesa spurningarnar um aðskilnað ríkis og kirkju og trúboð í skólum. Sumt samt einum og stjórnmálalegt. T.d. svarar Steinunn Guðnadóttir spurningunni: "Finnst þér að trúfélög eigi að hafa aðstöðu innan grunnskóla og aðgang að börnum til að stunda starfsemi á þeim vettvangi?" svona:

Ég er sammála því að samkvæmt grunnskólalögum skulu vera kenndar þær námsgreinar sem eru skilgreindar samkvæmt aðalnámsskrá Grunnskólans.

Minnir mig á Yes, minister, ef þú ert spurður einhverrar erfiðrar spurningar áttu að búa til þína eigin spurningu og svara henni :D

Sýnið viðbrögð, en vinsamlegast sleppið öllum ærumeiðingum. Einnig krefjumst við þess að fólk noti gild tölvupóstföng, líka þegar notast er við dulnefni. Ef það sem þið ætlið að segja tengist ekki þessari grein beint þá bendum við á spjallborðið. Þeir sem ekki fylgja þessum reglum eiga á hættu að athugasemdir þeirra verði færðar á spjallborðið.

Hægt er að nota HTML kóða í ummælum. Tög sem virka eru: a href, b, i, u, br, p, strong, em, ul, li og blockquote. Einnig er hægt að notast við Markdown rithátt í athugasemdum. Notið skoða takkann til að fara yfir athugasemdina áður en þið sendið hana inn.










Muna þig?