Allar færslur Allir flokkar Sos Um félagið Úrskráning Lógó Spjallid@Vantru Póstfang Vantru@Facebook Vantru@Youtube Vantru@Twitter

Guð hatar „sódómista“

Það er með miklum ólíkindum hve hinn kristilegi kærleikur getur tekið á sig hatursfullar myndir. Þeir sem mestan kristilegan kærleik hafa að bera víla ekki fyrir sér að halda því fram að tsunami-flóðbylgjan á Indlandshafi sé verk Guðs til að losna við alla vestrænu „saurlífisseggina“ sem sækja Tæland heim. Verðum við ekki bara að vona að þetta sé smekklaust grín?

Ritstjórn 02.01.2005
Flokkað undir: ( Vísun )

Viðbrögð


Carlos - 04/01/05 01:36 #

Fallega gert af þér, Birgir að gera mannhatara að talsfólki fyrir kirkju og kristni. Eru viðbrögð opinberra kirkna kannski ekki eftir einhverju handriti úr strái sem fuðrar upp við fyrsta neista?


Carlos - 04/01/05 01:40 #

Vísunin átti að vera

http://www.wcc-coe.org/

leiðréttis hér með.


Birgir Baldursson (meðlimur í Vantrú) - 04/01/05 01:44 #

Ég tala aðeins um að þessi trúarbrögð, sem þú aðhyllist, geti tekið á sig skelfilegar myndir. Félagar þínir á guðfræðivefnum eru á fullu að halda einhverju öðru fram um vilja og eiginleika Guðs í þessum hamförum, en allir sem einn fattið þið ekki að þessar hamfarir hafa ekkert með guði að gera frekar en tilurð og viðgangur veraldar yfirleitt.

Þetta eru allt saman ranghugmyndir, Carlos.

Ríd mæ lipps: R A N G H U G M Y N D I R.


S. Sigur - 08/01/05 18:37 #

Takk fyrir góða hugvakningu "Frelsari".

Til Carlos-ar Líttu til dæmis á trúbræður þína í kristninni á www.godhatesfagots.com Þetta eru svokallaðir Westboro Babtistar í Kansas USA. Þeir telja að Guð hafi hrint af stað manndrápinu í USA 9/11/01, AIDS, og nú síðast jarðskjálftanum og tsunami flóðbylgjunni í Asíu til þess að klekkja á þjóðum sem umbera samkynhneigða. Þeir benda á að samkvæmt ritningu í biblíunni beri að drepa samkynhneigða og þá sem umbera þá. Þeir hata Ameríku, Svíþjóð og fleiri lönd sem gera það.

Hvernig stendur á því að það er ekki búið að henda út biblíunni sem úreltu riti og hirða það nothæfa úr henni? Vissulega verður það ekki gert á með fólk trúir á þetta fyrirbæri sem kallast Guð og þangað til verða alltaf hópar sem taka allt sem er í biblíunni bókstaflega. Afleiðingarnar eru hörmulegar.


S.Sigur - 08/01/05 19:43 #

Ég átti nú við Takk fyrir góða hugvakningu Birgir


Óskar - 08/01/05 23:36 #

Skoða , henda..... Skoða , henda... Þið eigið eftir að enda á hnjánum... Allt spurning um tíma. Þið verðið eginlega að vona að GUÐ sé ekki til því á dómsdegi gerist nákvæmlega þetta þegar kemur að ykkur. SKOÐA , HENDA.

P.S. Hafa "hörðu hetjurnar" með "málstað einskis" sent peninga til nauðsdaddra í Asíu.


Snær - 09/01/05 03:39 #

Óskar skrifaði: "[Að skoða og að henda.] Þið verðið eginlega að vona að GUÐ sé ekki til því á dómsdegi gerist nákvæmlega þetta þegar kemur að ykkur."

Hér notar þú þau rök, að þegar að dauða okkar kemur, muni tilvist guðs þíns sannast fyrir okkur.

Það eru nú væntanlega ekki neinn til frásagnar um sannleiksgildi þessara raka, og engin önnur stuðningsrök heyri ég hér koma að máli.

Ég hef aldrei getað séð betur en svo að þessi sígildu rök séu nokkurn vegin verðlaus.

Óskar skrifaði: "Skoða , henda..... Skoða , henda... Þið eigið eftir að enda á hnjánum..."

Við hendum nú ekki alltaf öllu í framhaldi af því að skoða, þó það gerist reglulega. :)

Þangað til að þér, eða öðrum, tekst að sannfæra mig um það að notkun efahyggju, fremur en t.d. tiltrú, sé ólíklegri til þess að leiða mig til sannleika, þá held ég áfram að stunda efahyggju og hafa gaman af.


Birgir Baldursson (meðlimur í Vantrú) - 09/01/05 04:04 #

Mikið er nú skoðun þín á heiminum andstyggileg, Óskar minn. Og hve mikið ég vona að þú eigir eftir að standa upp af hnjánum áður en lífið er úti, og strjúka svolítið um frjálst höfuð.

P.S. Hafa "hörðu hetjurnar" með "málstað einskis" sent peninga til nauðsdaddra í Asíu.

Ójá. Rauði krossinn fékk þá peninga, enda ekki trúarstofnun. Hjálparstofnun kirkjunnar mun aldrei fá frá mér krónu eftir að skandallinn varð, þar sem einn af gömlu biskupunum og kumpánar hans skelltu sér í skemmtireisu til Póllands fyrir söfnunarfé sem ætlað var hungruðum heimi. Um það segir Helgi Hóseasson í óútgefnu riti:

Níuhundruðáttatíuogátta vetrum eftir dráp Ólafs trúboða Tryggvasonar kóngs yfir Nórrsvegsmönnum, fór"byskoppurinn yfir Íslandsmönnum,herra Pétur sigurgeirsson",á fé húngurmorða manna til Póllands, og þó víðarra,og margir fleiri álíka,ferðuðust til margra landa,þar sem ekki ríkti húngur,á fé húngurmorða manna,sem þessir krysstlingar sviku út frá almenningi.með "Hjálparstofnun klíkunnar"!!! Eftir aðhugun þeira sjálfra á þjófskap sínum lýstu húngurmorðingarnir yfir,í opinberum fréttafærum að "ekki örli á fjárdrætti hjá þeim"!!! Þar er Pétur byskopppur foringi!!!Ríó"styður og styrkir"krysstniboð sín,samkvæmt ákvæðum stjórnarskrárinnar!!!Einn húngurmorðinganna er Gunnlaugur Stefánsson klárkur.Pétur Póllandsfari dubbaði hann upp til Eimdalsþinga í kyrkuskrifl við Austurvöll í R.Þessa dubbun,og þessa háttar dubbanir styðja og aðstoða við,og votta hollnust Krysstinn Krossi,Jón,Arfi,Helgi á Himnum,Pétur byskoppur,Byrgir skólastjóri,Hákon dómari,Tómas ruglslæknir,Vigdís forseta,Jón bílasmiður,Þorsteinn Padda,og svo til allir aðrir krysstlingar slíkt er uppeldið á þessum lýð Alskotans. Breiðdælir kusu Gunnlaug húngurmorðinga til að miðla milli þeira og þess,"sem einginn hefir nokkru sinni séð",sá heitir sjötíuog tveim heitum svo sem eins og Alskoti,Jón,Jv,Hefnir,Jóshúa, Helgi,Gvuð,Þveinglafur,Krosslafur,Kvalaldur, Skapti,Évill,Þægir,Grandi,Himpill,Höfull,Pabbi, Þríeinn,EinnGAlinn,Trérumur,Dirokkur,Maríus, o.s.frv.alls 72 heiti!!! Breiðdælingar bíta agn Bóandar þar sanna að þeim hendtar hjálpargagn húngurmorðingjanna.

Trú er greinilega engin forsenda siðferðis.

Lokað hefur verið fyrir athugasemdir við þessa færslu. Við bendum á spjallið ef þið viljið halda umræðum áfram.