Allar færslur Allir flokkar Sos Um félagið Úrskráning Lógó Spjallid@Vantru Póstfang Vantru@Facebook Vantru@Youtube Vantru@Twitter

Skeptíkus - hreyfing ótrúaðra stúdenta

Skeptíkus er félag trúleysingja og efahyggjumanna innan Háskóla Íslands, félagið er nýstofnað en hópurinn sem að því stendur hefur verið til í töluverðan tíma. Þeir sem hafa áhuga á að starfa með félaginu eru boðnir á kynningarfund sem fer fram í stofu 131 í Öskju fimmtudaginn 28. október klukkan 19:30.

Skeptíkus

Ertu kominn með nóg af kjaftæðinu?
Kominn með upp í háls af biskupnum? Prestunum?
Þórhalli og öllum hinum miðlunum?
Skottulæknunum?
Fullorðnu fólk sem trúir á álfa?

Ef svo er komdu þá á kynningarfund hjá Skeptíkusi, félagi efahyggjumanna og trúleysingja í Háskóla Íslands.

Fundurinn fer fram í
stofu 131 í Öskju
klukkan 19:30

Skeptíkus 26.10.2004
Flokkað undir: ()

Viðbrögð


Birgir Baldursson (meðlimur í Vantrú) - 26/10/04 13:02 #

Til hamingju! Sannarlega kominn tími til að hefja heilbrigðan efa og pósitífisma til vegs og virðingar að ný innan veggja Háskólans, eftir áralangt póst-módern niðurlægingaskeið.


darri (meðlimur í Vantrú) - 26/10/04 14:22 #

Mann er bara farið að langa í skóla aftur... :)


Kalli - 27/10/04 02:04 #

Flott framtak. Maður reynir að mæta.


gagnrýnandinn - 27/10/04 12:28 #

Ég fagna þessu


Ormurinn - 02/11/04 10:51 #

Hvað mættu margir á fundinn?


Einar Ingvi Magnússon - 09/04/05 09:30 #

Gott hjá ykkur. Ég hef verið trúmaður í nokkra áratugi en frelsaðist úr trúarkjaftæðinu fyrir skömmu, eftir að ég las nýjustu bækur Danikens. Mannkynið hefur vaðið í villu trúarofstækis í aldir fáfræði og blindu. Það hefur hrærst í heimskulegum serímóníum byggðum á tækni utanjarðarmannkyns eins og Cargo-sértrúarflokkurinn í óbyggðum Ástralíu, sem tók trú á hermenn sem lentu á meðal frumbyggja í seinni heimstyrjöldinni. Trúarmunir þeirra voru kókdósir, kassar og útvarp og þeir trúa enn á guðinn Johnfrum, sem talinn er hafa verið: John from New York. Það er tími til kominn að við lítum á veröldina í ljósi tækninnar og hættum draugasögunum. (vildi segja meira)


Birgir Baldursson (meðlimur í Vantrú) - 09/04/05 14:43 #

Mig langar að óska þér til hamingju, Einar Ingvi, með það að vera búinn að losa þig undan hugarfjötrum trúarinnar. Þú ert velkominn í okkar hóp og sér í lagi munum við fagna því ef þú lyftir penna málstað okkar til stuðnings.

Einar Ingvi hefur verið öflugur talsmaður hindurvitna á síðum Morgunblaðsins undanfarna áratugi og nafn hans næstum því öðlast einhverskonar celeb-status í þessum málaflokki. Nú er bara óskandi að fleiri slíkir talsmenn átti sig og slái skjaldborg um skynsemina í þessum tjúllaða heimi.


petur þormar - 09/06/06 21:33 #

Hafið þið ekki lesið bokina blekking og þekking eftir Niels Dungal


Matti (meðlimur í Vantrú) - 09/06/06 22:14 #

Jú, það höfum við flest og það er minnst á hana nokkrum sinnum á Vantrúarvefnum. Brot úr bókinni er að finna á guðlastvefnum okkar.

Svo má minnast á það að Stefán Pálsson mun fjalla um bókina og áhrif hennar á samfélagið á trúleysisráðstefnunni sem verður haldin síðar í þessum mánuði.

Lokað hefur verið fyrir athugasemdir við þessa færslu. Við bendum á spjallið ef þið viljið halda umræðum áfram.