Allar færslur Allir flokkar Sos Um félagið Úrskráning Lógó Spjallid@Vantru Póstfang Vantru@Facebook Vantru@Youtube Vantru@Twitter

Afstæðishyggja

Eitt af því sem ég á hvað erfiðast með að skilja er þegar fólk er svo opið og umburðarlynt að það liggur við að það boði þekkingarfræðilega afstæðishyggju. Allar skoðanir eru jafnar og það þykir jafnvel dónalegt þegar sett er út á skoðanir annarra, hrokafullt að benda á rökvillur og rökleysur í málflutningi og gott ef það er ekki bara ómálefnalegt að þykjast vita betur en annað fólk.

Fólk sem boðar afstæðishyggju passar sig yfirleitt á að benda á að vísindi séu bara ein af þeim aðferðum sem við höfum til að öðlast þekkingu á heiminum og fullyrðir jafnvel að ýmsar aðrar aðferðir séu jafn góðar. Stundum er talað um fólk sem trúir því að framþróun vísinda sé í eðli sínu góð eins og þar sé um kjánalega barnatrú að ræða enda ekkert gott í eðli sínu eða hvað?

Það er sérlega stutt á milli þekkingarfræðilegrar afstæðishyggju og siðferðilegrar afstæðishyggju. Siðferðileg afstæðishyggja byggist á því að þó okkur þyki eitthvað rangt þurfi það alls ekki að vera rangt annars staðar. Siðferðileg afstæðishyggja getur orðið afskaplega varasöm því með henni er hægt að réttlæta hvað sem er með því að vísa til menningar eða sögu svæðis. Mannréttindi eru ekki lengur algild heldur afstæð eins og frægt varð þegar Vigdís heimsótti Kína. Það er því vont að fangelsa fólk fyrir skoðanir sínar á Íslandi en ekkert svo vont þegar það gerist í Kína.

Þetta ágæta fólk finnur stundum ástæðu til að gagnrýna svokallaða trúleysingja fyrir að vera sífellt að ráðast á trúmenn, leggja þá í einelti.
Í greininni Áréttingar um póstmódernisma sem birtist meðal annars í bókinni Mannkostir fjallar Kristján Kristjánsson um þá hörðu og á tíðum ómálefnalegu gagnrýni sem hann varð fyrir eftir að greinarflokkur hans um afstæðishyggju (póstmódernisma), Tíðarandi í aldarlok birtist í Lesbók Morgunblaðsins.

Tal um "ofsóknir" og "hleypidóma leiði ég hjá mér enda skýrist það af þeirri íslensku umræðuhefð (eða ef til vill fremur skorti á umræðuhefð) sem leggur að jöfnu sterka sannfæringu og ofsóknarkennd, skýrar skoðanir og fordóma.
Óskandi væri að fólk hefði þessi orð Kristján í huga .

Greinin birtist áður í örlítið annarri mynd á heimasíðu minni og þar voru komnar tvær athugasemdir. Áhugamenn um afstæðishyggju gætu hugsanlega haft gaman að þessum litla pistli um Alan Sokal og póstmódernisma.

Matthías Ásgeirsson 30.12.2003
Flokkað undir: ( Siðferði og trú )